26 May 2009

Fókusrölt


Fór á Fókusrölt með Jóhönnu systur í kvöld og upplifði Reykjavík og Vesturbæinn á nýjan hátt. Ekki vissi ég að það væri svona flott í Vesturbænum. Þetta tré varð á vegi okkar í einum bakgarðinum og húsið á bak við er líka flott.
Þetta var ótrúlega skemmtilegt kvöld og nú langar mig bara að fara aftur, það er spurning um að skrá sig í þetta Fókus félag. Ég þarf nú kannski að æfa mig pínu meira, áður en ég fer í félagið, það virtust allir vera svo klárir þarna.
Annars eru allar græjur til á þessu heimili, þrífótur og linsur það er bara spurningin um að fara að æfa sig og nota græjurnar. Þetta var bara gaman í kvöld. Takk Jóhanna fyrir að bjóða mér með.

1 comment:

  1. það væri bara frábært ef þú kæmir í félagið!
    Já þetta var æðisleg kvöldstund þarna í vesturbænum, ég lít á þennan bæjarhluta með töluvert minni fordómum núna en áður.

    ReplyDelete