29 December 2008

Sætar systur

Þær eru svooooo fallegar systurnar!!

Eins og vor

Veðrið í dag var eins og vorveður. Ég fór út að hjóla, það var æðislegt. Veðrið frábært og gott að komast ein út. Mér finnst alltaf svo gott að fá áramót, þá er bara bjart framundan. Þá fer smám saman að birta og það styttist í vorið og sumarið. Ég ætla að fá mér stól aftan á hjólið næsta sumar og hjóla með Lilju með mér. Hlakka mikið til.

Fleiri flottar bleyjur


Var að leggja inn pöntun fyrir 3 BumGenius AIO bleyjur og get ekki beðið eftir að fá þær. Þær eru bara æðislegar.

28 December 2008

Fyrsta færslan

Hér er komið nýtt blogg, hitt bloggið ætla ég að hafa bara fyrir prjónið mitt og aðra handavinnu. Þetta er allt hitt, eins og t.d. börnin mín sem ég er afar stolt af, hitt áhugamálið mitt um þessar mundir sem eru taubleyjur og ýmislegt fleira sem mér dettur í hug.