Hér er kjóllinn sem ég gerði á Lilju Katrínu úr þessum bol sem ég átti. Útkoman er frábær að mínu mati, hann passar fullkomlega og endurvinnslufílingurinn er fullkominn.
Guðrún María eldaði kvöldmat í gærkvöldi. Innbakaðar pulsur í brauði og grænmeti með. Þetta var rosalega gott og frábært að þurfa ekki að elda. Hún fann þessa uppskrift í uppskriftabók barnanna sem við eigum og er margt mjög girnilegt í henni.
Henni Lilju Katrínu fannst poppið æði! Pabbi hennar gaf henni að smakka um daginn og þá er ekki aftur snúið. Hún er líka búin að fatta hvað saltstangir eru góðar og þegar pabbi hennar stalst í saltstangir í hádegismatnum þá vildi hún ekki meira grænmeti, nei bara saltstangir.
Hún er að verða 1 árs eftir viku litla barnið mitt sem fæddist í gær! Hún stendur upp við allt, gengur með og segir tíu þegar maður spyr hana hvað hún sé með margar tásur.
Lilja Katrín að prófa stólinn í fyrsta skipti og með nýja hjálminn sinn sem hún reyndi stanslaust að taka af sér. Við hjóluðum meðfram ströndinni og týndum ber líka. Guðrún María og Gunnar voru með í för.
Eins og sést þá fannst henni mjög gaman í hjólaferðinni!!
Ég hjólaði með JÁ og GM í dag úr Grafarvogi í Nauthólsvík og þaðan í grasagarðinn í Laugardal og svo aftur heim. Þetta voru samtals 26 km og voru krakkarnir algjörar hetjur. Þau kvörtuðu aldrei og vildu sko ekki taka strætó úr Laugardalnum eins og ég bauð þeim, neihei þau vildu sko hjóla heim. Þetta var frábært, gott veður og skemmtilegur félagsskapur.
Gunnar og LK komu á bílnum og voru með okkur fyrst í Nauthólsvík, þar sem var of mikið rok og of kalt fannst okkur. Síðan hjóluðum við í Laugardalinn og hittum þau þar. Þar fundum við frábært skjól og settumst niður með teppi og nesti. LK lék á alls oddi í grasinu og fannst mjög gaman.
Svo var auðvitað nauðsynlegt að teygja á eftir allar hjólreiðarnar, þarna er GM að sýna mömmu sinni hvernig best er að teygja á.
LK glöð að klappa, við vinnum hörðum höndum að kenna henni að sýna hvað hún er stór en hún skilur það ekki ennþá. En hún klappar ef maður segir L klappa!
JÁ tannlaus! Loksins fór framtönnin sem var búin að vera laus alveg ótrúlega lengi. Nokkrum dögum áður fór tönnin í neðri góm.
Var að prófa nýju linsuna sem Gunnar keypti í London. 50 mm föst linsa og ég er bara nokkuð ánægð með hana. Þarf samt að æfa mig betur, var eiginlega bara með stillt á auto, sem er víst bannað!!